Leita að samstarfsaðilum í togararalli

Deila:

Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, hefur auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á togurum til stofnmælinga að hausti og vori. Þetta kemur fram í frétt á vef Hafró. Þar segir að um sé að ræða útboð vegna djúpslóðar í haustralli ásamt NA og S svæða í marsralli til eins árs (haustrall 2024, marsrall 2025) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sannmælast um það. Gert er ráð fyrir fjórum vikum í október (haustrall) og þrem vikum frá lokum febrúar fram í mars (marsrall).

Fram kemur að niðurstöður úr verkefnunum seú mikilvægar við mat á stofnstærð botnfiska og árlega aflaráðgjöf. Haustrall hafi farið fram frá árinu 1996 og teknar séu tæplega 400 stöðvar umhverfis landið. Þar af séu 179 stöðvar teknar á djúpslóð. Marsrall hefur farið fram ár hvert frá 1985 og séu teknar hátt í 600 stöðvar hringinn í kringum landið. Þar af séu tæplega 155 stöðvar teknar á hvoru þeirra svæða sem nú séu boðin út.

Einnig kemur fram að leiga sé greidd með aflamarki. Útboðsgögn má sækja á útboðsvefnum.

Deila: