Skýrsla um áhrif sjókvíaeldis á laxastofna

Ný skýrsla um vöktun vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna 2023 er komin út, að því er fram kemur á vef Hafró. Í skýrslunni kemur fram að samhliða auknu eldi á laxi í sjókvíum fylgi því áhættur sem taldar eru geta ógnað stöðu villtra laxastofna hér á landi, t.d. erfðablöndun. Settur hefur verið aukinn kraftur í vöktun vegna áhrifa sjókvíaeldis á íslenska laxastofna sem skipta má niður í nokkra þætti; vöktun með fiskteljurum, greiningu meintra strokulaxa úr eldi í ám, uppruna-greiningu laxa með hreisturrannsóknum og rannsóknir á erfðablöndun. Í skýrslunni er gerð grein fyrir þessum þáttum ásamt helstu niðurstöðum rannsókna fram til ársins 2023.
Sú samantekt vöktunar sem greint er frá í skýrslunni er sú fjórða sem tekin hefur verið saman frá því umfang laxeldis í sjókvíum fór að aukast hér við land. Því hefur nokkur reynsla skapast varðandi umfang og aðferðir vöktunarinnar.