Vinnsla á makríl gengur vel

Deila:

Síldarvinnslan á Neskaupstað hefur lokið við að veiða um þriðjung þess makrílkvóta sem Síldarvinnslu- og Samherjaskipin fimm hafa til umráða. Skipin eiga í veiðisamstarfi – veiða í púkk.

Skipin hafa samtals landað um 12.400 tonnum af makríl. Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að vertíðin hafi gengið vel þrátt fyrir að hafa þurfi fyrir veiðunum. Nánast öll veiðin hefur farið fram innan íslenskrar lögsögu. Fram kemur að þess vegna séu gæði fisksins sem skipin færa að landi betri en ef fiskurinn veiddist á fjarlægari miðum.

Deila: