Karfi, ýsa og þorskur

Deila:

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi af karfa í Eyjum sl. sunnudag. Í morgun landaði skipið síðan nær fullfermi af ýsu og þorski. Frá þessu greinir á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Heimasíðan ræddi við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra og spurði fyrst hvernig karfatúrinn hefði gengið.

„Hann gekk býsna vel. Við fengum karfann að mestu í Skerjadýpinu og það gekk vel að veiða. Þetta var hinn fallegasti karfi sem fór beint í útflutning til Þýskalands og Frakklands. Við héldum til veiða á ný strax að löndun lokinni og þá var haldið austureftir. Við tókum eitt hol á Pétursey en síðan var farið á Papagrunn. Þar fengum við ýsu en fljótlega brældi og þá var haldið á Höfðann þar sem fékkst þorskur. Það voru ansi mikil stím í veiðiferðinni og þau eru tímafrek. Komið var til hafnar eldsnemma í morgun og hófst löndun klukkan sex. Við förum út á ný í kvöld og ég reikna með að þá verði farið í svipaðan túr og þann síðasta,” er haft eftir Birgi Þór.

Deila: