Byrjaði 14 ára hjá Síldarvinnslunni

Deila:

Jón Már Jónsson hefur eftir langan og farsælan feril hjá Síldarvinnslunni ákveðið að láta af störfum. Jón Már lét af störfum þann 1. ágúst síðastliðinn sem yfirmaður landvinnslu hjá Síldarvinnslunni en hann á sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Þó mun Jón Már gegna ráðgjafastörfum fyrir forstjóra og yfirmenn fiskimjölsverksmiðja og fiskiðjuvers til febrúarloka á næsta ári.

Jón Már hóf störf hjá Síldarvinnslunni á unga aldri. Hann var líklega aðeins 14 ára þegar hann vann fyrst sumarlangt í frystihúsinu. „Mig minnir að ég hafi unnið þar í þrjú sumur og líkaði vel,“ er haft eftir Jóni Má á vef Síldarvinnslunnar, þar sem finna má langt og ítarlegt viðtal við hann. Eftir að hafa lokið vélstjóra- og vélvirkimenntun sinnti hann fjölbreyttum verkefnum á sjónum, m.a. á skipum eins og Mælifellinu sem sigldi víða um heim.

„Þegar ég hafði lokið landsprófi fór ég í Menntaskólann í Kópavogi haustið 1973. Að fyrsta vetrinum í skólanum loknum fékk ég pláss á Víði NK sem þá var á síld í Norðursjónum. Mér líkaði afar vel á sjónum og fannst flest sem tengdist sjómennskunni spennandi,“ segir Jón Már.

Jón Már sinnti fjölbreyttum verkefnum allt til ársins 1995, þegar hann tók við starfi verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þessi nýja staða markaði upphafið að fjölbreyttu tímabili framkvæmda og framfara, þar sem tölvutækni var innleidd og nýr búnaður settur upp í verksmiðjunni.

Árið 2008 breyttist starfssvið Jóns Más aftur þegar hann varð yfirmaður landvinnslu hjá Síldarvinnslunni. „Það var ekki síður áhugavert að sinna verkefnum tengdum fiskiðjuverinu en verkefnum sem tengdust fiskimjölsverksmiðjunum,“ segir Jón Már.

Jón Már kveður Síldarvinnsluna formlega í febrúar en hann hyggst þó njóta komandi tímabils til að sinna fjölskyldunni og tómstundum. „Ég er þó ekki alveg hættur og verð viðloðandi fram í febrúar. Til þess tíma verð ég alltaf klár og til viðtals. En nú er maður orðinn 67 ára og kominn tími til að sinna ýmsu sem kannski hefur setið á hakanum,“ segir Jón Már að lokum.

Viðtalið má í heild sjá hér.

Myndin er af vef Síldarvinnslunnar. Hana tók Smári Geirsson.

Deila: