Tjörnin að ná sér

Deila:

Ný skýrsla sem kom út á dögunum á vegum Hafrannsóknastofnunar sýnir að hin síðari ár hafa ekki miklar breytingar á lífríki Tjarnarinnar en sé horft á stöðuna frá árinu 2007 hefur orðið gjörbreyting. Frá þessu er greint á vef Hafró.

Þar er rakið að ástand tjarnarinnar hafi verið slæmt 2007. Tjörnin hafi verið gruggug og algjörlega gróðurlaus. Felst gildi hvað varðar vísbendingar um mengun hafi verið vel ofan við viðmiðunarmörk. Ráðist hafi verið í ýmsar úrbætur sem einnig hafi tekið til Vatnsmýrarinnar, enda ljóst að grunnforsenda bætts vatnsbúskap og umbótum á vatnasviði ef ætlunin var að bæta ástand vatns á borð við Reykjavíkurtjörn.

„Nokkurt hlé varð á vöktun Tjarnarinnar á þessum árum en þó var safnað gögnum um blaðgrænu, sýrustig og rafleiðni í tengslum við annað verkefni og benda þær upplýsingar til að frá og með árinu 2012 megi greina merki jákvæðar breytingar á vatnsgæðum.

Árið 2015 var svo gerð könnun á lífríki Tjarnarinnar og þá kom í ljós að vatnagróður hafði náð sér nokkuð á strik og ánæstu árum greri Tjörnin upp að fullu. Á sama tíma hefur rafleiðni farið lækkandi sem bendir til minna magns uppleystra efna í vatninu. Blaðgræna og sýrustig sveiflast nú með árstíðabundnum hætti, svipað og sjá má í náttúrulegum stöðuvötnum. Í dag virðist ríkja nokkur stöðugleiki hvað helstu þætti varðar en væntanlega er kerfið enn í landnámsfasa hvað gróður varðar og það dýralíf sem honum tengist,” segir í fréttinni.

Deila: