IceFish 2024 hefst á morgun

Deila:

Íslenska sjávarútvegs-, sjávarrétta- og fiskeldissýningin, IceFish 2024, hefst í Smáranum á morgun 18. september. Þar verða sýningargestir frá öllum heimshornum að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar. Dyrnar verða opnaðar klukkan 10:00 en formleg opnunarathöfn hefst klukkan 14:00. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, setur sýninguna með formlegum hætti.

Fram kemur í tilkynningunni að IceFish fagni 40 ára afmæli í ár og sýningin muni af því tilefni verða einkar glæsileg í alla staði. Nýjasta tækni og þjónusta í sjávarútvegi verði til sýnis, bæði fyrir almenna gesti og mögulega viðskiptavini úr bæði sjávarútvegsgeiranum og tengdum atvinnugreinum.

„IceFish mun fagna 40 ára stórafmælinu sínu með því að heiðra sérstaklega hjartkæra sýnendur sem hafa fylgt henni allar götur frá árinu 1984! Sýningin heldur áfram að vaxa og dafna og má nefna að á sýningunni núna eru 57 nýir sýnendur frá 14 mismunandi löndum,” segir í tilkynningunni.

IceFish-sýningin í ár býður meðal annars upp á:

  • Nýtt kynningarsvæði fyrir sýnendur til að koma á framfæri nýjungum, verkefni og þjónustu.
  • Nákvæmt yfirlit kynningar á nýjum vörum og þjónustu til að gefa gestum tækifæri til að skipuleggja dagskrá sína og velja hvað og hverja þeir vilja sjá á sýningunni.
  • Fjölbreytni í fagi sem þróast stöðugt meira í vinnslu sjávarafurða.
  • Ókeypis fyrirtækjastefnumót fyrir gesti og sýnendur, skipulögð af sjávarútvegs-og þjónustudeild Enterprise Europe Network Iceland í samstarfi við Rannís.
  • Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent 18. september, en þau heiðra framúrskarandi árangur í greininni.

Meðfylgjandi mynd er frá sýningunni í fyrra.

Hér má sjá nánari upplýsingar um sýninguna.

Deila: