Breytt ferli loðnunnar vegna loftslagsbreytinga

Deila:

Miklar breytingar hafa orðið á dreifingu og farleiðum loðnu. Þetta mat er sett fram í grein sem vísindamenn frá Hafrannsóknastofnun, í samstarfi við Tækniháskólann í Danmörku (DTU Aqua), birtu nýlega grein í vísindaritinu Fisheries Oceanography þar sem breytingar á útbreiðslu loðnu í kjölfar loftlagsbreytinga á Íslandi-Austur-Grænlandi-Jan Mayen svæðinu var rannsökuð.

Fram kemur í greininni að megin fæðusvæði loðnunnar frá Íslandshafi norður af landinu til austurstrandar Grænlands í byrjun aldarinnar. Því til viðbótar hefur sú þróun verið greinileg að  hrygningarloðna hefur frá 2003 komið seitta að vetri inn á svæðin norður af Íslandi. Mismunandi tölfræðilíkönum var beitt í þessari rannsókn sem gáfu til kynna að þessar breytingar á dreifingu loðnunnar tengdust umhverfisbreytingum í hafinu.

Í frétt Hafrannsóknarstonfunar segir að verkefnið sé hluti af Horizon 2020 verkefni Evrópusambandsins, ECOTIP, þar sem áhersla hafi verið á að greina vistfræðilega vendipunkta í norðurhöfum, þ.e. að ákvarða hvenær breytingar á vistkerfisþáttum ná mörkum sem munu hafa víðtækari áhrif.

 

Deila: