Eftirlit með 30 afskekktum vitum

Deila:

Vegagerðin á 105 vita um allt land. Þar af eru 30 sem aðeins er hægt að komast að frá sjó eða lofti. Um viðhald þessara vita er fjallað í fjórða tölublaði af Framkvæmdasfréttum, blaði sem Vegagerðin gefur út. Í greininni kemur fram að árlega fari starfsmenn Vegagerðarinnar í hringferð um landið með varðskipi Landhelgisgæslunnar og sinni viðhaldi þessara afskekktu vita.

Fram kemur Guðmundur Jón Björgvinsson, rafvirkjameistari á tækjabúnaðardeild Vegagerðarinnar hafi fairð í ferðina í ár með tveimur samstarfsfélögum sínum. Ferðinni er lýst í blaðinu en þar segir meðal annars að áhöfnin hafi sinnt ótal verkefnum tengdum sínu hlutverki sem löggæsluaðili á hafinu ásamt því að koma tveimur skipum til bjargar.

„Aðstoðin við okkur í þessum vitaferðum er því hálfgert hliðarverkefni við gæslu, eftirlit og björgun,“ er haft eftir Guðmundi í greininni.

Meðfylgjandi mynd er úr safni og er af Dyrhólaeyjarvita.

Deila: