Hulda Björnsdóttir GK afhent

Það var stór dagur í skipasmíðastöðinni í Gijón á Spáni í dag þegar Hulda Björnsdóttir GK11 var afhent Þorbirni hf að viðstöddum fulltrúum Þorbjarnar og skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armon. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Þorbjörns hf.
Þar er sagt frá því að togarinn sé 58 metra langur og 13,6 metra breiður. Hann sé búinn nýjustu tækni þegar kemur að vinnslu, meðhöndlun og kælingu afla ásamt því að vistarverur áhafnarinnar verða allar til fyrirmyndar.
„Hönnun skipsins er framúrstefnuleg að því leiti að vél, stærð skrúfu og skrokklagið miðar allt að því að draga úr olíunotkun skipsins og skila jafnframt mikilli togspyrnu,” segir í færslunni. Þar er tekið fram að sjó- og veiðarfæraprófanir séu afstaðnar og að þær hafi gengið mjög vel. Nú sé unnið að því að gera skipið klárt til heimferðar.
Búist er við að skipið sigli í heimahöfn í Grindavík í næstu viku.