Skemmtiferðaskip til Reykjavíkur aldrei fleiri

Deila:

Flutningar um hafnir á Íslandi námu 7,1 milljón tonna árið 2023 sem er 8% minna en árið 2022. Frá þessu greinir á vef Hagstofunnar.

Umsvifamestu hafnir landsins voru sem fyrr Reykjavík, Grundartangi, Reyðarfjörður og Straumsvík. Reykjaneshöfn var í fimmta sæti, enda töluverð aukning i innflutningi á flugvélaeldsneyti.

Þá komu 262 farþegaskip til Reykjavíkurhafnar árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri.

Deila: