Fimm þúsund tonnum af frystum afurðum skipað út

Í liðinni viku var 5.000 tonnum af frystum afurðum skipað út hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, að því er segir á vef fyrirtækisins. að stærstum hluta fóru afurðirnar í tvö frystiskip. Fyrra skipið var afgreitt frá laugardegi til þriðjudags og tók 2.600 tonn en hið síðara tók 2.300 tonn og var afgreitt á 12 tímum sl. fimmtudag. Þessu til viðbótar segir í fréttinni að stöðugt sé verið að setja afurðir í gáma sem fari um borð í flutningaskip í Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð.
„Jú, þetta er býsna mikið en það var mikil þörf á þessum útskipunum því þröngt var orðið í geymslunum sem taka um 20.000 tonn. Útskipunin í seinna skipið, eða það sem afgreitt var á fimmtudaginn, er alger metútskipun. Að skipa út 2.300 tonnum á 12 tímum er í einu orði sagt rosalegt og væri ekki hægt nema vegna þess að við erum með frábæran mannskap sem kann svo sannarlega til verka. Staðreynin er sú að hér hefur aldrei farið jafn mikið magn um borð í skip á einum degi. Það sem skipað var út í vikunni var að mestu leyti síld en þó fóru um 200 tonn af makríl og 80 tonn af bolfiski í fyrra skipið og um 240 tonn af makríl í hið síðara. Nú hefur verið skapað dálítið pláss í frystigeymslunum fyrir þá síld sem verið er að framleiða en auðvitað þarf sífellt að vera að rýma til fyrir það sem framleitt er,” segir Stefán Einar Elmarsson, yfirmaður í frystigeymslum SVN.
Meðfylgjandi mynd er frá útskipuninni. Mynd: Smári Geirsson/SVN