Veiðum lokið á norsk-íslenskri síld

Veiðum Síldarvinnsluskipa á norsk – íslenskri síld á þessari vertíð er lokið. Beitir NK kom með síðasta farm vertíðarinnar til Neskaupstaðar í dag og fer hann allur til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri fyrirtækisins. Frá þessu greinir á vef Síldarvinnslunnar.
Rætt er við Sigurð Valgeir Jóhannesson skipstjóra á Beiti, sem segir að veiðarnar hafi gengið ágætlega, en skipið kom með 1.140 tonn að landi. Aflinn fékkst að sögn í fjórum holum í Seyðisfjarðardýpinu. „Það var dregið í einn og hálfan til fjóra tíma. Við byrjuðum fyrst á að leita og það var víða síld að sjá en þarna í Seyðisfjarðardýpinu var hún í töluverði magni. Síldin er brellin og alltaf á ferðinni, hún birtist og hverfur. Það er ljóst að nú er norsk – íslenska síldin farin að ganga frá landinu. Næst á dagskrá er að fara að huga að íslensku sumargotssíldinni,” segir Sigurður.