Ný bók um þorsk

Deila:

Út er komin bókin Líffræði og vistfræði Atlantshafsþorsks (e. Biology and Ecology of Atlantic Cod) á vegum vísindaútgáfunnar CRC Press. Frá þessu segir á vef Hafró. Þar kemur fram að Dr. Ingibjörg G. Jónsdóttir sjávarvistfræðingur á Hafrannsóknastofnun sé á meðal ritstjóra og höfunda bókarinnar en einnig komi fjórir aðrir sérfræðingar stofnunarinnar að skrifum tveggja kafla.

Auk Ingibjargar koma Christophe Pampoulie, Einar Hjörleifsson, Jacob Kasper og Jón Sólmundsson, sem öll eru starfsmenn Hafrannsóknastofnunar, að skrifunum. Alls leggja 27 vísindamenn hönd á plóg við ritun bókarinnar.

Á vefnum segir að í inngangi bókarinnar komi fram að þorskur sé ein mikilvægasta fisktegundin í Norður Evrópu og við austurströnd Bandaríkjanna og Kanada. Þorskur hafi haft mikil áhrif á þróun byggða á mörgum svæðum og sér í lagi hafi hrun þorskstofna haft neikvæðar afleiðingar fyrir minni sjávarbyggðir.

„Bókin veitir greinargott yfirlit um líffræði og vistfræði þorsks. Í sjö köflum er farið ítarlega yfir stöðu mismunandi þorskstofna í N-Atlantshafi þar sem einblínt er á grunnþekkingu viðkomandi stofns. Í hinum þremur köflum bókarinnar er farið ítarlegar yfir áhrif loftslagsbreytinga á þorskstofna, fæðuvistfræði þorsks og samanburð mismunandi þorskstofna.”

Sjá nánar hér.

Deila: