Fá að færa 25% á milli ára

Fiskistofa hefur veitt útgerðarfyrirtækjum sem eiga veiðiheimildir í makríl heimild til að færa 25% aflaheimildanna yfir á næsta ár. um er ða ræða hækkun frá fyrri reglum. Breytingin tekur gildi strax. Fiskistofa hvetur útgerðir með aflamark í makríl til að kynna sér breyttar heimildir á heimasíðu stofnunarinnar.
Veidd voru tæplega 90 þúsund tonn af makríl á síðustu vertíð en uppsjávarskipin höfðu fengið 131 þúsund tonna heimild. Þriðjungur makrílsins náðist því ekki.