Mun færri selir í grásleppunetin

Deila:

Meðafli sjávarspendýra, sérstaklega útsels, var í grásleppunetum töluvert lægri á árunum 2020-2023 en árin á undan. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í skýrslu Hafró. Að sama skapi var meðafli fugla metinn aðeins lægri en tímabilið áður, að mestu leyti vegna minni sóknar.

„Erfitt er að fullyrða um ástæður minnkunar á meðafla á land- og útsel milli tímabila, en farið var í ýmsar aðgerðir til að minnka meðafla eftir 2020. Helstu aðgerðir snérust að svæðalokunum og auknu eftirliti, bæði með fjarstýrðum loftförum og með eftirlitsmönnum um borð í bátum, og gætu þær aðgerðir hafa minnkað meðaflann,” segir á vef Hafró.

Fram kemur að algengustu sjávarspendýrin sem komi í grásleppunet séu landselur, útselur og hnísa. Algengustu fuglarnir voru æðarfugl, teista, langvía og skarfar.

Á þessum fjórum árum var lítill munur á meðaflatíðni sjávarspendýra milli veiðisvæða, dýpis og mánaða, en nokkur munur var á meðaflatíðni fugla milli veiðisvæða.

„Matið á meðaflanum byggir á gögnum úr alls 220 róðrum veiðieftirlits Fiskistofu. Meðaflatíðni var reiknuð út frá róðrum veiðieftirlits á hverju veiðisvæði og síðan uppreiknuð með sókn allra báta,” segir á vefnum.

Nálgast má skýrsluna í heild hér (athugið að skýrslan sem hér um ræðir er efst – frá 7. febrúar 2024.)

Deila: