Starfshópur um lagaumgjörð hvalveiða

Deila:

Stjórnvöld hafa stofnað starfshóp sem rýna á í lagaugjörð hvalveiða. Undir eru alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins, valdheimildir og skyldur stjórnvalda á þeim grundvelli. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, verði formaður hópsins.

Bent er á að Katrín Jakobsdóttir gegni embætti matvælaráðherra um þessar mundir. Það er hún sem skipar hópinn, sem skila á skýrslu þar sem fram á að koma valkostagreining um mögulegar leiðir til úrbóta og stefnumótunar. Valkostir skulu bæði taka mið af áframhaldandi veiðum sem og takmörkun eða banni við veiðum til framtíðar. Skýrslunni er ætlað að vera grundvöllur fyrir framtíðarstefnumótun um hvalveiðar.

Starfshópinn skipa:

  • Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, formaður
  • Dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindarétti við Háskóla Íslands
  • Árni Kolbeinsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar
  • Dr. Snjólaug Árnadóttir, forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík og dósent
  • Trausti Fannar Valsson, forseti lagadeildar Háskóla Íslands og dósent í stjórnsýslurétti
Deila: