130 færðir af launaskrá Vísis

Deila:

Í dag fengu 130 af starfsfólki Vísis meðfylgjandi bréf þar sem þeim er tilkynnt að þau falli af launaskrá og fari á úrræði ríksins vegna náttúruhamfaranna í Grindavík. Þetta kemur fram á vef Vísis. Fram kemur að ekki sé um rof á ráðningasambandi að ræða. Eftir í fyrirtækinu verða 60 manns í landi sem vinna við þau verkefni sem í gangi eru, m.a. saltfiskvinnsluna í Helguvík.

„Almannavarnir hafa gefið út að núverandi óvissuástand geti staðið fram á sumar 2024. Verklagsreglur Almannavarna hamla því að starfsemi sé haldið úti í bænum að öllu leyti eða hluta. Tekist hefur að hefja starfsemi með saltfisk á tveimur nýjum stöðum en starfsmenn þar eru færri en annars væri og verkefnin hafa breyst. Nánari útfærsla hvað það varðar verður kynnt í vikunni,” segir á vefnum.

Deila: