Óska eftir umsögnum um kvótasetningu grásleppu
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur sent til umsagnar 521. mál Veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).
Frá þessu er greint á vef Landssambands smábátaeigenda.
Þeir sem áhuga hafa á að senda inn umsagnir við frumvarpið er bent á að umsagnarfrestur er til og með 15. febrúar. Umsagnir skal senda á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Frumvarpið byggir á áður fluttu frumvarpi matvælaráðherra frá 153. löggjafarþingi, 976. mál á þskj. 1524.