Þorskur, ýsa og ufsi

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í Neskaupstað í liðinni viku; Bergur á miðvikudag og Vestmannaey á fimmtudag. Afli skipanna var að sögn heimasíðu Síldarvinnslunnar blandaður, mest þorskur, ýsa og ufsi.

Bæði skip fóru óvenju víða í veiðiferðinni og átti veðrið þar hlut að máli að því er fram kemur í fréttinni. Bergur hóf veiðar á Pétursey og Vík en þar fékkst aðeins þorskur. Sömu sögu var að segja frá Ingólfshöfða. Ufsinn fékkst hins vegar á Breiðamerkurdýpi og ýsa á Hvalbaki. Túrnum var svo lokið á Tangaflakinu, þar sem aflinn var blanda af ýsu og þorski.

Deila: