Bjarni Sæmundsson til sölu

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er til sölu. Það er Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) sem auglýsir skipið til sölu. Von bráðar verður nýtt skip Hafrannsóknastofnunar, Þórunn Þórðardóttir, afhent.
Bjarni Sæmundsson, sem var smíðaður í Þýskalandi 1970, hefur verið nýttur í hafrannsóknir í ríflega hálfa öld. Skipið var tekið til gagngerra endurbóta 2003 og þá var skipt um allar þrjár vélarnar í skipinu. Ganghraði er 12 mílur en á skipinu hefur verið 14 manna áhöfn. Aðstaða er fyrir 13 rannsóknarmenn um borð.
Fram kemur að skipið sé 56 metra langt og 10,6 metra breitt.
Fyrirspurnarfrestur er til 31. mars.