Sjóveiki feimnismál innan stéttarinnar

Deila:

Sjómenn á togurum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa taka þátt í viðamikilli rannsókn Hreyfivísindaseturs Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands á einkennum hreyfiveiki – eða sjóveiki. Þetta kemur fram á vef Samherja. Þar segir að fullkominn hátæknibúnaður hafi verið fluttur til Akureyrar í tengslum við þátttöku sjómannanna. Með sýndarveruleikatækni framkalli búnaðurinn hreyfingar sem séu svo raunverulegar að þátttakendur verði sjóveiki. Markmiðið er að mæla og meta breytingar á líffræðilegum merkjum sem tengjast hreyfiveiki og sérstaklega sjóveiki. Meta á samspil milli mismunandi líffræðilegra merkja með því að nota gervigreind og vélanám. Auk þess stendur til að auka skilning á orsökum sjóveiki og þróa aðferðir til að þjálfa og meðhöndla einstaklinga og draga úr einkennum.

Fram kemur að um fjögur hundruð einstaklingar hafi tekið þátt í rannsókninni, sem hafi staðið yfir í langan tíma. „Hérna á Akureyri fáum við hins vegar sjómenn sem eru að koma úr veiðiferð, hafa sem sagt verið á sjó í töluverðan tíma. Togarinn Björg EA kom til löndunar snemma í morgun og sjómennirnir voru svo vinsamlegir að taka þátt í rannsókninni á meðan öll kerfin í líkamanum eru í raun enn stillt inn á veruna á sjónum. Síðan bætast við fleiri áhafnir á næstu dögum,” segir Hannes Petersen prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.

Rætt er við Karl Helgason á Björgu EA en hann tók fyrstur þátt í rannsókninni á Akureyri. Hann segist varla finna fyrir sjóveiki en í verstu veðrum finni hann þó smá velgju. „Það er sjálfsagt að taka þátt í þessari rannsókn og vonandi verður í framtíðinni hægt að draga úr einkennum sjóveiki. Ég held að sjómenn tali ekki mikið um sjóveiki, ég er ekki frá því að þetta sé svolítið feimnismál innan stéttarinnar. Þessi búnaður er hreint magnaður, sýndarveruleikatæknin er mjög raunveruleg,“ segir Karl Helgason.

Nánar má lesa um málið hér. Myndin sem fylgir fréttinni er af Karli Helgasyni. Hún er fengin af vef Samherja.

Deila: