Átta milljarðar í veiðigjald

Íslenskar útgerðir greiddu um átta og hálfan milljarð króna í veiðigjald fyrstu tíu mánuði þessa árs, að því er fram kemur í grein á vef SFS, samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Fram kemur að það sé um 2% lægri upphæð en fyrir sama tímabil í fyrra. Í ár hafi enginn loðnukvóti verið gefinn út.
„Sé veiðigjald af loðnu undanskilið í tölunum teiknast upp allt önnur mynd. Þá er heildarfjárhæð veiðigjaldsins rúmlega 23% hærri á fyrstu tíu mánuðunum í ár en á sama tímabili í fyrra.”
Fram kemur að venju samkvæmt sé mest veiðigjald greitt af þorski, eða 4,7 milljarðar. Það sé rúmlega 45% hærri fjárhæð en veiðar á þorski skiluðu á sama tíma í fyrra.
„Það má að stærstum hluta rekja til þess að upphæð veiðigjaldsins á hvert kíló af þorski er mun hærri í ár en hún var í fyrra, eða 26,66 krónur á móti 19,17 krónum. Þar að auki var þorskaflinn rúmlega 4% meiri á fyrstu tíu mánuðunum í ár en á sama tímabili í fyrra. Veiðar á ýsu hafa svo skilað næsthæstri fjárhæðinni í veiðigjald, eða sem nemur 1.545 milljónum króna. Það má jafnframt hvort tveggja rekja til þess að um fimmtungi meira af afla hefur verið landað af ýsu í ár en í fyrra og krónutala veiðigjaldsins í ár er hærri en í fyrra, eða 22,28 krónur á móti 19,82 krónum. Veiðar á kolmunna verma svo þriðja sætið en þær hafa skilað um 898 milljónum króna í veiðigjald, sem er um þriðjungi hærri fjárhæð en í fyrra. Þar er jafnframt saman sagan; greiða þarf 3,20 krónur fyrir hvert kíló af kolmunna í ár samanborið við 2,49 krónur í fyrra og kolmunnaaflinn er um 3% meiri.”