Slátrað úr Haukadalsbót

Deila:
Arctic Fish er þessa dagana að slátra eldisfiski úr Haukadalsbót í Dýrafirði. Þar hefur framleiðslan gengið mjög vel. Fiskurinn er sagður vera fallegur og af góðum gæðum. Þetta kemur fram í færslu fyrirtækisins á Facebook.
„Yfirleitt nær Nova Trans að mæta í Dýrafjörðinn seinni part dags eftir að hafa tæmt sig í Bolungarvík upp úr hádeginu. Þegar slátrun er lokið er siglt í Dýrafjörðinn og sóttur skammtur fyrir næsta dag, yfirleitt um 80-110 tonn,” segir í færslunni.
„Þegar þeir koma þangað er starfsfólk okkar í Dýrafirði búið að gera klárt fyrir afhendingu. Það er gert þannig að nótinni er lyft og kastnót er sett út sem þrengir að fiskinum upp að brunnbátinum sem sýgur hann um borð lifandi. Þaðan er svo siglt í Bolungarvík þar sem að slátrun hefst í morgunsárið.
Yfirleitt þarf um 6-10 vinnsludaga til að klára hverja kví en um 10 kvíar eru á hverju eldissvæði.”
Deila: