Lærbrotnaði eftir óvænta öldu

Deila:

Óvænt alda var orsök þess að skipstjóri strandveiðibáts slasaðist þann 24. júní síðastliðinn. Skipverjinn féll við og lærbrotnaði þegar aldan skall á bátnum. Við fallið sló hann út rafmagninu í bátnum og braut innsláttarrofann. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa að maðurinn hafi náð samband við neyðarlínu fyrir heppni. Hann var sóttur á slysstað en þyrla flutti hann svo á sjúkrahús.

Í samantekt segir: „Þann 24. júní 2024 var Elín NK 12 á leið á veiðar þegar báturinn fór fram af öldu og skall niður með þeim afleiðingum að skipverji slasaðist. Björgunarskipið Hafbjörg kom á staðinn til aðstoðar og þegar skipin voru komin í kyrrari sjó tók þyrla Landhelgisgæslu Íslands skipverjann og kom honum á sjúkrahús. Veður: S 4-5 m/s og ölduhæð 1,5-2 metrar.”

Skipstjórinn hafði siglt austur frá Norðfjarðarhorni, um 15 sjómílna ferð, án vandkvæða. Þegar komið var þar sem skipstjórinn hugðist veiða var annar bátur fyrir á staðnum og ákvað hann að fara á annan veiðistað. Hann sneri bátnum upp í ölduna og var með athyglina á siglingatækjunum og tók ekki eftir því þegar stór alda skall á bátnum. Skipstjórinn tókst á loft og skall upp í þak stýrishússins og þegar báturinn skall niður kom hliðarhreyfing á hann á stjórnborða. Afleiðingarnar voru þær að skipstjórinn lenti til hliðar við stólinn og hægri fóturinn skall á horni hans. Hann áttaði sig strax að hann væri líklega lærleggsbrotinn, að því er fram kemur í skýrslunni.

„Í byltunni rakst hann jafnframt í útsláttarrofa fyrir rafmagnið um borð svo rofinn brotnaði meðþeim afleiðingum að allt rafmagn fór af bátnum þar með talið af talstöðinni. Skipstjórinn hafði því einungis símann og hringdi því í Neyðarlínuna en sambandið var lélegt. Hann náði þó að skýra frá ástandinu áður en sambandið slitnaði. Meðan hann var að tala við Neyðarlínuna ákvað hann að reyna að sigla bátnum áleiðis til hafnar en var það kvalinn að hann sló fljótlega af og drap á vélinni. Stuttu síðar hringdi Vaktstöð siglinga og sökum þess að báturinn var nú einhverjum mílum nær landi þá var sambandið orðið betra og gat skipstjórinn haft eðlileg
samskipti í gegn um síma.”

Fram kemur að útkallsbeiðni hafi borist um 4:30 og um 20 mínútum síðar hafi björgunarskipið Hafbjörg siglt úr höfn. Um borð voru sjö manns, fimm björgunarsveitarmenn og tveir bráðaliðar. Fóru tveir úr áhöfn Hafbjargar ásamt bráðatækni um borð. Var Elínu siglt nær landi þar til þyrla Landhelgisgæslunnar kom og var hinn slasaði hífður um borð í hana og fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.

Fram kemur í skýrslunni að slysið hefði ekki orðið hefði hann tekið eftir öldunni. Þá hefði hann getað gripið í eitthvað til að halda sér. „Símasamband var lélegt á þessum slóðum og að sögn skipstjóra var hann heppinn að ná símasambandi við björgunaraðila. Að mati skipstjórans vantar sendi fyrir síma á Dalatanga en ekkert símasamband er frá Gerpi að Norðfjarðarhorni ef farin er svokölluð grunnleið nema siglt sé fjórum mílum hið minnsta frá landi. Þá sé sambandið orðið mjög lélegt úti á 15 mílum á þeim stað sem slysið varð. „Þessi sendir myndi ná inn í Loðmundarfjörð, norður að Glettingi og suður með Síðu og að Gerpi og svo langt út á haf“ sem væri mikilvægt öryggisatriði.

Deila: