Systurskipin með fullfermi

Deila:

Systurskipin Vilhelm Þorsteinsson EA og Börkur NK eru bæði komin til Neskaupstaðar með fullfermi af kolmunna sem fékkst í færeysku lögsögunni. Vilhelm kom á laugardag og Börkur í morgun. Frá þessu greinir á vef Síldarvinnslunnar.

Fram kemur að hvort skip sé með 3.100 til 3.200 tonn. Landað sé úr þeim næstum jafnóðum og aflinn sé unninn, enda sé kolmuninn best geymdur kældur um borð í skipunum.

Rætt er við Guðmund Þ. Jónsson skipstjóra á Vilhelmi í fréttinni. „Þetta var hinn fínasti túr og nú eru jólin framundan. Það eru allir spenntir að komast heim fyrir hátíðar,” er haft eftir honum. Í svpaðan streng tenkur Hálfdán Hálfdánarson á Berki.

„Við fengum aflann í níu holum og þau voru misjafnlega stór eða frá 220 tonnum og upp í 600 tonn. Það var dregið í 14 – 15 tíma. Þetta telst vera mjög góð veiði en þetta er þó ekki sama mokið og var áður en við komum á miðin. Veðrið í túrnum var eins og best gerist en veiðisvæðið er austsuðaustur af Færeyjum. Nú erum við að dytta að veiðarfærum og tryggja að allt sé klárt þegar haldið verður til veiða á nýju ári. Síðan verður byrjað að landa í fyrramálið og að því loknu verður komið jólafrí. Nú bíða allir eftir loðnufréttum og menn vona heitt og innilega að það verði loðnuvertíð – það væri svo óskaplega gott að fá einhver tonn af loðnunni,” sagði Hálfdan.

Haft er eftir Hafþóri Eiríksyni verksmiðjustjóra að um úrvalshráefni sé að ræða; fiskurinn sé feitur og flottur. Vinnslan gangi mjög vel. Reiknað er með að vinnslu aflans ljúki á föstudag.

Deila: