Hanna Katrín nýr ráðherra sjávarútvegsmála

Deila:

Hanna Katrín Friðriksson tekur í dag við sem nýr ráðherra sjávarútvegsmála í ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Hún ber titilinn atrvinnuvegaráðherra. Und­ir ráðuneytið munu falla mála­flokk­ar land­búnaðar, sjáv­ar­út­vegs og iðnaðar.

„Þetta eru grunnatvinnuvegir þjóðarinnar og þarna er verðmætasköpunin. Þannig ég er full tilhlökkunnar að takast á við þetta verkefni í nánu samstarfi við hagsmunaaðila bæði nær og fjær,“ segir hún í viðtali á Vísi.

Á Vísi er bent á að í stefnuskrá Viðreisnar segi að flokkurinn vilji að í stað veiðigjalds verði ákveðinn hluti kvótans settur á markað á hverju ári, og boðinn út sem nýtingarsamningur til 20 ára.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir um sjávarútvegsmál:

Með því að ýta undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu. Í sjávarútvegi verða gerðar auknar kröfur um gagnsæi í eignarhaldi og skerpt á skilgreiningu tengdra aðila. Ríkisstjórnin mun tryggja 48 daga til strandveiða […] Ríkisstjórnin mun styrkja lagaumgjörð fiskeldis til að sporna gegn neikvæðum áhrifum á lífríki og innleiða hvata til eldis á ófrjóum laxi og til eldis í lokuðum kvíum.

Deila: