Óttast að kerfið éti sig að innan

„En hvað strandveiðarnar varðar þá er bara verið að halda áfram að þróa kerfi sem mun éta sig að innan, þ.e.a.s. þegar þú gefur frjálsan aðgang að takmörkuðum heimildum þá fjölgar alltaf í hópi þeirra sem vilja fá að njóta þar til of lítið er til skiptanna fyrir hvern og einn. Þetta er nákvæmlega það sem við sögðum í þinginu þegar þetta kerfi var búið til, þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst og þegar of margir eru komnir inn í kerfið en það sem er til skiptanna, hvað gera með þá? Þá grípa menn til svona ráða.“
Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtali í Spursmálum Morgunblaðsins. Þar Bjarni spurður um þá boðuðu aðgerð stjórnvalda að tryggja strandveiðibátum 48 daga á sjó, yfir lengra tímabil en hingað til hefur verið.
„Menn segja bara, nú munu bara allir fá fullan skammt, allir munu fá 48 daga. Hvað þarftu að gera til þess að tryggja það? Þú þarft að stórauka heimildirnar. Hvað gerist eftir að þú hefur stóraukið heimildirnar þannig að allir sem núna vilja fá sína 48 daga geta fengið, það bara heldur áfram að fjölga. Og hvað ætlar þú þá að gera? Þetta er kerfi sem heldur áfram að éta sig að innan.“
Bjarni sagði að hann styddi fjölbreytileika í kerfinu. Hann benti líka á að veiðarnar hafi komið langbest út fyrir báta á Vesturlandi og Vestfjörðum. „Ég meina við skulum ekki gera lítið úr því að strandveiðarnar halda talsverðu lífi í höfnunum víða um landið.“