Flotinn heldur til veiða

Veiðar eru að hefjast á nýbyrjuðu ári. Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergur VE héldu til veiða í fyrrinótt að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar frá því í gær. „Í morgun hafði Bergur hafið veiðar á Pétursey og Vík en Vestmannaey var á leiðinni á Höfðann. Bergur fór í stutta veiðiferð á milli jóla og nýárs og landaði að henni lokinni daginn fyrir gamlársdag,” segir í færslunni.
Enn fremur kemur fram að frystitogarinn Blængur NK sé farinn út og sé við veiðar á austurmiðum. Gert sé ráð fyrir 40 daga túr. Gullver NS mun halda til veiða á frá Seyðisfirði í dag.
Uppsjávarskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK eru lögð af stað til kolmunaveiða í færeyskri lögsögu í nótt.
Fram kemur að áhafnir uppsjávarskipanna munu án efa fylgjast grannt með loðnuleit sem væntanlega hefjist fyrir eða um miðjan janúarmánuð.