Metfjöldi þyrluútkalla 2024

Deila:
Útköll á sjó voru um fimmtungur allra útkalla þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á nýju ári. Fram kemur í færslu gæslunnar að metfjöldi útkalla hafi borist, eða samtals 334. Það er 31 útkalli meira en árið 2023.
Af útköllunum 334 voru 135 farin á fyrsta forgangi og 150 á öðrum forgangi. Ríflega helmingur útkallanna voru vegna sjúkraflutninga eða um 183 útköll.
„Sjúkraflutningum á landi og sjó fjölgaði um tæplega 14% frá fyrra ári þegar farið var í 161 sjúkraflutning. 85 útköll voru vegna leitar eða björgunar. Eins og áður voru flest útköllin á Suðurlandi eða um þriðjungur allra útkalla síðasta árs. Einnig var nokkur fjöldi vegna útkalla sem tengdust jarðhræringunum á Reykjanesi.
Útköll á sjó voru um fimmtungur allra útkalla þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar. Þyrluútköllum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum áratug og til samanburðar má nefna að árið 2016 voru útköllin 253.”
Deila: