Fiskistofa tekur þátt í kennslu hjá GRÓ Fisheries Training Programme

Deila:

Fiskistofa tók í liðinni viku þátt í kennslu í tengslum við Fisheries Training Programme (FTP) hjá GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu á vegum UNESCO. Í frétt á vef stofnunarinnar segir að náminu sé ætlað að efla færni og þekkingu fólks frá þróunarlöndun í sjálfbærri nýtingu auðlinda hafs og vatna.

Háskólinn á Akureyri leiðir kennsluna en starfsmenn Fiskistofu voru með kynningar um fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands, framkvæmd og starfsemi Fiskistofu.

Í fréttinni segir að GRÓ FTP sé hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands sem hafi það að markmiði að stuðla að sjálfbærum fiskveiðum og bættri auðlindastjórnun. Þátttakendur að þessu sinni hafi komið frá Kenýa, Malaví, Úganda og Tanzaníu.

„Fiskistofa leggur áherslu á gagnsæi í stjórn fiskveiða og hvernig hægt er að nýta bestu mögulegu aðferðir til að tryggja jafnvægi milli nýtingar og verndar sjávarauðlinda. Með þátttöku sinni í þessu alþjóðlega samstarfi eykur stofnunin tengsl sín við fagfólk um heim allan og leggur sitt af mörkum til að styrkja getu annarra þjóða til sjálfbærrar auðlindastjórnunar,” segir í fréttinni.

GRÓ jan 25 - Fiskistofa
Deila: