Hafró og HÍ semja um kennslu í fiskifræði

Deila:

Nýlega var endurnýjaður samstarfssamningur á milli Háskóla Íslands og Hafrannsóknastofnunar um kennslu í meistaranámi í fiskifræði og skyldum greinum. Fyrri samstarfssamningur var undirritaður 2020 og síðan þá hafa fjöldi sérfræðinga hjá stofnuninni koma að kennslu og leiðbeiningu nemenda í meistaranámi innan þessa samstarfssamnings. Frá þessu segir á vef Hafró. Þar kemur fram að um sé að ræða kennslu í Sjávar- og vatnalíffræði á verkfræði og náttúruvísindasviði.

Fram kemur að efni námskeiða og verkefna byggi á sérfræðiþekkingu starfsmanna við Háskóla Íslands og Hafrannsóknarstofnunar sem sjái um kennsluna og einnig samstarfsaðila á Íslandi. Möguleiki sé á að vinna rannsóknarverkefni við aðrar rannsóknarstofnanir.

„Viðfangsefni námskeiða og mögulegra verkefna munu endurspegla þessa þekkingu í fiskifræði, vatnalíffræði, sjávarvistfræði, haffræði og umhverfisfræði og einnig notkun ólíkra aðferða við rannsókir á lífríkinu þ.á.m. notkun líkana og tölfræði við stofnstærðarmat, greiningu á kvörnum, hljóðum og merkingum, nýtingu útlits og erfðaupplýsinga við rannsóknir á lífríki ferskvatns og sjávar, bæði samfélögum og stofnum lífvera til dæmis fiska, sjávarspendýra og fugla.”

Deila: