Kvótahafar í grásleppu geta hafið veiðar

„Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki í grásleppu og því geta skip með almennt veiðileyfi ásamt hlutdeildum og aflamark í grásleppu hafið veiðar.” Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. Þar segir enn fremur:
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um úthlutunina á gagnasíðum Fiskistofu og ýmsar gagnlegar upplýsingar tengdar veiðunum má finna í grein tileinkuðum grásleppuveiðum.
Gott að vita:
-
Aðeins fiskiskip með aflahlutdeild í grásleppu á viðkomandi staðbundnu veiðisvæði geta stundað þar veiðar.
-
Fiskiskip með aflamark í grásleppu þarf að vera skráð innan staðbundins veiðisvæðis, þ.e. í heimahöfn og landa í löndunarhöfn innan sama veiðisvæðis.
-
Ef fiskiskip er flutt af staðbundnu veiðisvæði fellur aflamark og aflahlutdeild skipsins í grásleppu niður.