Leiðbeina félagsmönnum að komast hjá greiðslu

Landssamband smábátaeigenda beinir þeim tilmælum til félagsmanna sinna, sem ekki hyggjast greiða nýtilkomið árgjald vegna lögskráningar, að senda erindi þess efnis á Samgöngustofu. Árgjaldið að Skútunni er 26.487 krónur.
„Menn rak í rogastans þar sem þeir könnuðust ekki við að hafa óskað eftir breytingum á fyrirkomulagi við lögskráningu. Samkvæmt gjaldskránni hafði verið rukkað um 4.606 kr. í byrjun síðasta árs sem er árlegt gjald fyrir hvern notanda fyrir aðgang að lögskráningarkerfinu til rafrænnar skráningar. Jafnframt mátti lesa á heimasíðu Samgöngustofu: „Árgjald aðgangs að lögskráningarkerfi (pr. notand, pr. skip)“. Væri óskað eftir skráningu fyrir fleiri en einn var gjaldið 5.758 kr.”
LS gerði athugasemdi við innheimtuna og sagði í bréfi að þjónustan hefði ekki verið kynnt. Hafi Samgöngustofa í hyggju að breyta framangreindu fyrirkomulagi er stofnuninni í lófa lagið að gera það, enda verði þjónustan kynnt fyrir LS sem gæti lagt mat á hvort hún væri nauðsynleg fyrir félagsmenn. Á þann hátt sem hér hefur verið lýst telur LS eðlilegt að standa að málum, en ekki eftiráinnheimtu fyrir það sem ekki hefur verið kynnt. ítrekaði síðan erindið við stofnunina, um að fella þetta gjald niður.”
Þessari beiðni hafnaði Samgöngustofa.
Nú beinir LS því til félasgmanna, sem ekki hyggjast greiða árgjaldið, að segja sig frá þjónustunni. LS birtir dæmi um texta sem hægt er að senda stofnuninni:
Undirritaður hefur ekki gerst áskrifanda af þeirri þjónustu sem verið er að rukka fyrir og biður ykkur um að fella niður þann reikning sem honum var sendur í tölvupósti 10. janúar síðastliðin sem sagður var fyrir aðgang að kerfinu fyrir árið 2024.