Auðlindagjöld og auknar strandveiðar: „Kveinið bara”

Áform um auðlindagjöld og strandveiðar komu við sögu í stefnuræðu forsætisráðherra og ræðu Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku og loftlagsráðherra, sem fluttar voru á Alþingi á mánudag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra áréttaði í ræðu sinni að strandveiðar verði tryggðar í 48 daga í sumar og breytingar verði gerðar á veiðigjaldi til að það endurspeglaði betur aflaverðmæti.
Jóhann Páll sagði í ræðu sinni að ný ríkisstjórn ætlaði að innheimta „sanngjörn auðlindagjöld” og „binda þjóðareign auðlinda í stjórnarskrá”. Óhætt er að segja að hann hafi boðið stjórnarandstöðunni birginn.
„Það skapar óvissu, segja þau, en ég segi við Sjálfstæðismenn: Kveinið bara. Farið í öll þau setuverkföll hérna inni sem ykkur sýnist. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun stöðva kjaragliðnun milli lífeyris og launa því það er réttlætismál. Og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun tryggja þjóðinni aukna hlutdeild í arðinum af auðlindum vegna þess að við eigum þessar auðlindir saman. Þetta er réttlætismál. En þetta er líka liður í því að koma jafnvægi á rekstur ríkisins eftir óstjórn síðustu ára. Þetta er líka liður í því að koma jafnvægi á rekstur ríkisins sem er forsenda þess að við getum stutt og styrkt opinbera þjónustu til framtíðar og rekið hérna sterkt velferðarþjóðfélag á Íslandi. Það er planið og það er komið til framkvæmda. Þetta er nákvæmlega þar sem þessir þrír flokkar voru kosnir til að gera.”
Á samsettu myndinni eru Kristrún Frostadóttir, Jóhann Páll Jóhannsson og Hanna Katrín Friðriksson, ráðherra sjávarútvegsmála.