Segja áformin ógna kjarasamningum

Deila:

Samtök fyritækja í sjávarútvegi segja að langtímakjarasamningar við sjómenn og landverkafólk kunni að vera í uppnámi vegna þeirra aðgerða sem ný ríkisstjórn hefur boðað. Stjórnin hefur meðal annars boðað hærri auðlindagjöld og eflingu strandveiða.

Sjá einnig: Auðlindagjöld og auknar strandveiðar: „Kveinið bara”

Stjórn SFS sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem áhyggjum af rekstrarskilyrðum í sjávarútvegi er lýst. Þar er nefnd aukning strandveiða, hækkun veiðigjalds, hækkun kolefnisgjalds og frekari takmarkanir á eignarhaldi. Þessi atriði þyngi róðurinn verulega.

„Sjávarútvegi keppir á útivelli í erfiðri alþjóðlegri samkeppni, við ríkisstyrktan sjávarútveg annarra þjóða, og hefur þar enga stöðu til þess að velta kostnaðarhækkunum heima fyrir út í verð afurða. Fram hjá þessari stöðu má ekki horfa,” segir SFS í yfirlýsingunni.

Fram kemur að fáar aðgerðir eða hugmyndir liggi fyrir aum boðaða aukna verðmætasköpun lykilatvinnuvega í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. „Með því að vega að samkeppnishæfni atvinnugreinar sem leggur þung lóð á vogaskálar hagvaxtar og góðra lífskjara hér á landi er leiðin vörðuð að minni ávinnningi samfélagsins af nýtingu sjávarauðlindarinnar.”

Loks segir: „Það er í þessu samhengi umhugsunarefni að langtímakjarasamningar hafa verið gerðir bæði við sjómenn og landverkafólk, í krafti þess að aukin verðmætasköpun og framleiðni geti staðið undir skuldbindingum samninganna. Þær forsendur kunna að bresta ef kynntar fyrirætlanir ríkisstjórnar ganga eftir.”

Deila: