Aflasamdráttur um 11%

Landaður afli í janúar 2025 var tæp 78,7 þúsund tonn sem er 11% minna en í janúar árið á undan. Á tólf mánaða tímabilinu frá febrúar 2024 til janúar 2025 var heildaraflinn 985 þúsund tonn en var 1,356 þúsund tonn árið áður. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar en þar segir að rekja megi samdráttinn aðallega til þess að engin loðna var veidd í ár.