Fiskiskip fékk í skrúfuna

Deila:

Upp úr klukkan 9 í gærmorgun var áhöfn Húnabjargarinnar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Skagaströnd, kölluð út eftir að skipstjóri fiskibáts sem var þá staddur utarlega í Húnaflóa hafði haft sambandi við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskað aðstoðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Þar segir að net hafi farið í bæði aðalskrúfu bátsins og hliðarskrúfu. Skipinu hafi því ekki verið hægt að sigla fyrir eigin vélarafli.

Húnabjörgin lagði að sögn úr höfn á Skagaströnd skömmu fyrir klukkan 10. Á vettvangi var hæglætis veður og lítil hætta á ferðum. Sigling Húnabjargar, sem er eitt af eldri björgunarskipum félagsins, tók rétt um tvo tíma og um hádegisbil var búið að koma taug á milli og haldið í átt til Skagastrandar.

Dráttur gekk vel, þó hægt væri farið, en skipin sigldu til lands á um 6 til 7 sjómílna hraða. Komið var til hafnar á Skagaströnd um 5 leitið eftir áfallalausa heimsiglingu, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Deila: