Fordæma rangfærslur SFS

Deila:
Strandveiðifélag Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málflutnings SFS um útflutning strandveiðifisks en samtökin hafa haldið því fram að meira sé flutt út af óunnum strandveiðifiski en öðrum fiski sem kemur að landi. Félagið segir fullyrðingar ósannar og til þess fallnar að afvegaleiða umræðuna og skaða ímynd strandveiða. Félagið fer fram á að SFS biðjist afsökunar á rangfærslunum. Jafnframt er í ályktun Strandveiðifélags Íslands skorað á Morgunblaðið að taka ábyrgð á þessari miðlun villandi upplýsinga og birta leiðréttingu.
Yfirlýsingin er í heild hér:

Ályktun Strandveiðifélags Íslands

Strandveiðifélag Íslands fordæmir rangfærslur Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) um útflutning strandveiðifisks og þær fullyrðingar að meira af honum sé flutt út óunnið en í öðrum útgerðarformum. Þessar staðhæfingar eru með öllu ósannar og einungis settar fram í þeim tilgangi að afvegaleiða umræðuna og skaða ímynd strandveiða ásamt þeim sjómönnum er við þær starfa
Við krefjumst þess að SFS biðjist opinberlega afsökunar á þessum röngu upplýsingum og leiðrétti ummæli sín. Jafnframt skorum við á Morgunblaðið að taka ábyrgð á miðlun þessara villandi upplýsinga og birta leiðréttingu, enda er hlutverk faglegra fjölmiðla að sannreyna upplýsingar og tryggja að almenningur fái rétt og staðreyndum stutt efni.
Strandveiðifélag Íslands stendur vörð um hagsmuni smábátaútgerðar og rétt almennings til upplýstrar umræðu byggðrar á staðreyndum.
Deila: