Nýliðunarkvóti „ekki upp í nös á ketti”

„Hér er einn ein falleinkuninn sem lögin fá,” segir í frétt Landssambands smábátaeigenda um úthlutun Fiskistofu á nýliðunarkvóta í grásleppu. Þar skipta 48 útgerðir með sér þeim 65 tonnum sem til úthlutunar voru. Erindum níu útgerða var hafnað. Fyrir vikið fær hver útgerð aðeins 1,4 tonn í aflamark.
Fram kemur að magnið sé um ræðir sé 5,3% af upphafsaflamarki, sem er 1.216 tonn.
„Eins og sjá má er þetta ekki upp í nös á ketti. Aðilar sem fóru á grásleppu í fyrsta skiptið 2023, stunduðu veiðar sl. tvær vertíðir eiga litla möguleika á áframhaldandi veiðum. Að falla úr 60 tonna afla niður í 5 tonn er eitthvað sem gengur ekki upp,” segir í fréttinni.
Samkvæmt reglugerð „telst sá aðili nýliði sem á skip sem ekki hefur skráða aflahlutdeild og hefur ekki fengið úthlutað aflahlutdeild eða átti rétt á aflahlutdeild í grásleppu vegna fiskveiðiársins 2024/2025.“