Heimferðin gæti tafist vegna veðurs

Ekki liggur fyrir hvenær nýrr rannsóknaskip Hafró, Þórunn Þórðardóttir HF-300, leggst að höfn í Hafnarfirði. Heimferðin hófst á þriðjudag en veðurspá er ekki hagstæða. Þórunn mun leysa Bjarna Sæmundsson af hólmi en hann hefur verið seldur. Bjarni verður afhentur nýjum eigendum á laugardag.
Eins og kunnugt er, er nýja skipið nefnt í höfuðið á frumkvöðli rannsókna á frumframleiðni í hafinu og einum helsta svifþörungafræðingi landsins, Þórunni Þórðardóttur (1925 – 2007) en hún hóf störf hjá Hafrannsóknastofnun, sem þá hét Atvinnudeild Háskóla Íslands, fiskideild. Þórunn vann mest allan sinn starfsaldur sem deildarstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, þar sem hún bæði hóf og stýrði íslenskum svifþörungarannsóknum um 40 ára skeið.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir af vef Hafró en fleiri myndir er að finna þar.