Óbreytt ráðgjöf í loðnu

Uppsjávarveiðiskipin Aðalsteinn Jónsson og Polar Ammassak voru í samvinnu við Hafrannsóknastofnun við loðnurannsóknir í síðustu viku, að því er fram kemur á vef Hafró. Þar var markmiðið að kanna hvort meira af loðnu hefði skilað sér inn á norðvesturmið síðan loðnumælingar fóru fram þar í fyrri hluta febrúarmánuðar.
„Magnið af loðnu sem mældist nú var ívið lægra en fyrri mælingin og því ljóst að ekkert hafi bæst við loðnugönguna. Fyrri ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um veiðar á 8589 tonn loðnu á yfirstandandi vertíð stendur því óbreytt,“ segir í fréttinni.