Síldin er úrvalshráefni

Deila:

Síldin sem nú er verið að vinna í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar er úrvalshráefni. Þetta kemur fram í máli Odds Einarssonar, yfirverkstjóra, í frétt á vef Síldarvinnslunnar. Þar kemur fram að mjög stutt sé á miðin og veiðin góð.

„Nú er verið að vinna úr Beiti NK en hann kom í morgun með 900 tonn eftir örstutta veiðiferð. Miðin eru um 50 mílur hér út frá Norðfirði og skipin stoppa stutt á miðunum. Þau eru síðan 4 – 5 klukkutíma að færa okkur hráefnið í land. Staðreyndin er sú að hráefnið er eins ferskt og hægt er að hugsa sér. Síldin sem veiðist er stór og átulítil. Nú heilfrystum við stærstu síldina en síðan eru einnig framleidd samflök Það sem flokkast frá í manneldisvinnslunni fer ásamt afskurði til mjöl- og lýsisframleiðslu.” segir Oddur.

Fram kemur að unnið sé á þrískiptum vöktum í fiskiðjuverinu. Þannig hafi það verið frá upphafi makrílvertíðarinnar í byrjun júlí. Síldarvertíðin hófst 21. ágúst. „Síðustu ár hefur síld borist til okkar fram í nóvember en nú hefur miklu verið bætt við kvótann í íslenskri sumargotssíld þannig að við vitum ekki hve vinnsla síldar mun vara lengi hér í fiskiðjuverinu. Það á eftir að koma í ljós,” er haft eftir Oddi.

Deila: