Nýta róbóta, tölvusjón og gervigreind

„Í fiskeldi er mikill áhugi á tæknilausnum okkar og við sjáum líka mikil tækifæri til að nýta þá tækniþekkingu og þann búnað sem bæði Klaki og dótturfyrirtæki okkar, Ration, hafa verið að þróa á allra síðustu árum. Fiskeldi er því ekki síður en hvítfiskvinnslan á hraðferð í nútímatækni sem byggist meðal annars á tölvusjón, gervigreind og sjálfvirkni,“ segir Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri Klaka ehf.
Klaki ehf. hefur haslað sér völl á allra síðustu árum í nýsköpun í fjölbreyttum vinnslubúnaði fyrir bæði landvinnslur og skip. Dótturfyrirtæki þess, Ration ehf., var stofnað til að einbeita sér að þróun hátæknibúnaðar fyrir fiskeldi byggða á tölvusjón og hefur þróað lausnir sem nú þegar eru komnar í notkun og leggja grunninn að enn frekari þróun á þessu sviði. „Fyrirtækin tvö vinna saman að verkefnum þegar við á og við finnum fyrir aukinni eftirspurn enda fiskeldisgreinin í hröðum vexti á Íslandi þessi árin,“ segir Óskar.
Fyrsti brautarróbótinn á Íslandi
Starfsmenn Klaka og Ration hafa að baki sér menntun á sviðum hugbúnaðarþróunar, verkfræði, gervigreindar og róbótatækni auk smíði á vinnslubúnaði fyrir viðskiptavini. Í framleiðslu Klaka hefur mikil áhersla verið á róbótatæknina og er fyrirtækið umboðsaðili fyrir japanska róbóta af gerðinni Yaskawa og nýtir þá í mörgum tilfellum í sínum kerfum. „Róbóta má nota í fjölbreyttum tilgangi og í vinnslu fiskeldisafurða liggur beinast við að beita þeirri tækni í stöflun a eð fjölbreyttar lausnir allt frá stórum fimm ása afkastamiklum róbótum yfir í minni sérútfærðar lausnir eftir því hvernig aðstæður eru. Þessa dagana erum við að ljúka við fyrsta brautarróbótinn á Íslandi sem settur verður upp hjá viðskiptavini í landeldi en þarna er um að ræða róbót á braut sem getur staflað á sex vörubretti í einu. Því fylgir mikið hagræði, sparar mikið pláss og opnar möguleika til afurðaflokkunar á bretti, t.d. eftir stærðum eða öðrum upplýsingum sem við getum látið tölvusjónina lesa út úr strikamerki á frauðkössum,“ útskýrir Óskar.
Sjálfvirkni víða möguleg
Sem dæmi um aðrar róbótalausnir frá Klaka nefnir Óskar flokkunarróbót sem getur stærðarflokkað heilan fisk eða flök inn á mismunandi vinnslu- eða pökkunarleiðir. „Þetta er lausn sem nýtist vel í pökkunarstöðvum á eldisfiski og sömuleiðis erum við með í þróun vöruhúsakerfi fyrir vinnslur sem getur með sjálfvirkum hætti flutt tóma frauðkassa af lager að pökkunarsvæði. Okkar sérhæfing felst í því að þróa sjálfvirknilausnir hvar sem þeim verður fyrir komið í fiskvinnslum. Í sumum tilfellum hafa starfsmenn í vinnslunum óskir um lausn á einstökum verkþáttum en í mörgum tilfellum sjáum við í heimsóknum í vinnslurnar verkþætti þar sem okkar tækniþróun getur komið að gagni í nýjum búnaði.“
Nánar er fjallað um Klaka í nýju tölublaði Sóknarfæris