Veigamiklar breytingar á strandveiðum boðaðar

Deila:

Matvælaráðuneytið hefur kynnt til samráðs drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar nr. 460/2024.

Samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar er markmið að tryggja 48 daga til strandveiða. Lagðar eru því til breytingar á reglugerð um strandveiðar fyrir komandi strandveiðitímabil sem hefst 5. maí 2025. Samhliða þeirri breytingu þarf einnig að gera breytingar á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni á fiskveiðiárinu 2024/2025 og almanaksárinu 2025 er varðar það magn sem ráðstafað verður til strandveiða.

Þetta kemur fram í samráðsgátt stjórnvalda. Þar  eru lagðar til þrjár breytignar. Í fyrsta lagi verði lagt til að sækja þurfi um strandveiðileyfi fyrir 15. apríl og ekki verið heimilt að sækja um leyfi eftir það tímamark. Þó verði umsækjanda heimilt að tilgreina í umsókn upphafsdag strandveiða, ef t.d. umsækjandi er að ljúka veiðum í öðrum kerfum. Verði breytingin staðfest mun fjöldi báta sem stundar strandveiðar liggja fyrir áður en strandveiðitímabilið hefst. Mun þetta fela í sér aukinn fyrirsjáanleika og einföldun í framkvæmd, að því er fram kemur í kynningu.

Í öðru lagi er lagt til að relgur um eignarhald verði hertar. Í drögunum er lagt til að eigandi lögaðila sem er lögskráður á fiskiskip á strandveiðitímabilinu skuli eiga að minnsta kosti meirihluta í lögaðilanum. Þannig getur strandveiðiskip í eigu lögaðila ekki haldið úr höfn nema sá sem á meira en 50% í lögaðila sé lögformlega skráður um borð í skip í gegnum lögskráningarkerfi sjómanna. Þetta hefur sennilega í för með sér að vinir, hjón eða feðgar geta ekki átt strandveiðibát saman til helminga og róið til skiptis.

Í þriðja lagi er boðað að skipstjórum strandveiðibáta verði gert skylt að senda aflaupplýsingar stafrænt til Fiskistofu áður en skipi er lagt að bryggju í löndunarhöfn að lokinni veiðiferð.

Í drögum reglugerðarinnar er gert ráð fyrir að breytingin öðlist gildi við staðfestingu, svo unnt sé að ljúka undirbúningi fyrir komandi strandveiðitímabil.

Þegar þetta er skrifað hefur 31 umsögn borist.

Deila: