Báðir eiga sök á slysinu

Samverkandi þættir urðu til þess að árekstur varð milli Höddu og flutningaskipsins Longdawn að því er fram kemur í niðurstöðu rannsóknanefndar samgönguslysa. Skipin rákust saman 16. maí í fyrra, með þeim afleiðingum að Höddu hvolfdi. Skipstjóri Höddu festist inni í stýrishúsi en komst út og var bjargað af nærliggjandi smábáti.
Í niðurstöðu skýrslunnar segir að óhappið hafi verið báðum skipstjórum að kenna.
„Skipstjóra Höddu bar að víkja samkvæmt reglu 10 (j) og reglu 15. Hann fylgdist ekki nægjanlega vel með siglingu bátsins sem var á 20 hnúta ferð. Vakthafandi stýrimaður Longdawn sem þrátt fyrir að eiga forgang bar að fara eftir reglu 17 (b) og gera allt til að forða árekstri. Skipstjóri Longdawn var undir áhrifum áfengis og fíkniefna og skorti því dómgreind til ákvarðanatöku. Vakthafandi stýrimaður Longdawn hlýddi fyrirmælum skipstjórans þrátt fyrir efasemdir og hélt siglingu áfram.”
Mikilvæg ábending kemur fram í skýrslunni: „Athygli við siglingu báta á mikilli ferð þarf að vera óskipt. Önnur verk ættu að bíða þar til báturinn hefur
verið stöðvaður og vissa sé fyrir hendi að engin hætta sé aðvífandi.”