Hafa saltað úr 2.500 tonnum á árinu

Deila:

„Við hjá Vísi erum að vinna úr um 80 tonnum á dag að meðaltali og einstaka daga er framleitt úr yfir 100 tonnum í salthúsinu og frystihúsinu. Í salthúsinu sjálfu starfa 48 manns og síðan starfa átta í svonefndu Gjögurhúsi og þrír við frystingu á léttsöltuðum fiski. Þannig að við saltfiskverkunina starfa um 60 manns.”

Þetta segir Sigurður Jónsson, rekstrarstjóri saltfiskframleiðslu hjá Vísi í Grindavík, sem er í eigu Síldarvinnslunnar. Þar er fjallað ítarlega um salfiskvinnsluna. Fram kemur að á þessu ári hafi verið tekið á móti 2.500 tonnum af afla í salthúsi Vísis.

Fram kemur að starfsfólkið sé frá sjö löndum. „Hér starfa 23 Pólverjar, 17 Taílendingar, átta Serbar, átta Íslendingar og síðan tveir frá Nígeríu, Tékklandi og Spáni. Uppistaða starfsfólksins hefur unnið hér í mörg ár og hér er um að ræða frábært starfsfólk. Þegar ég hóf störf hjá Vísi voru 60% starfsmannanna Íslendingar en það hefur svo sannarlega breyst.”

„Hráefnið í saltfiskvinnsluna er mest þorskur, en síðan er framleitt úr keilu, ufsa og löngu. Starfsemin byggir á traustum mörkuðum sem auðvitað þarf að sinna vel. Stóri línufiskurinn fer mest á Ítalíu og Spán en smærri línufiskur fer á Grikkland. Síðan framleiðum við svonefndan portfisk í Gjögurhúsinu sem fer á Portúgal. Það hefur talsvert breyst hjá okkur eftir að Síldarvinnslan festi kaup á Vísi. Kvótinn jókst og það er jafnara flæði á fiski inn í vinnslurnar. Hráefnisöflunin varð öll öruggari en áður og það er mjög jákvætt fyrir starfsemina,” segir hann.

Nánar er fjallað um málið hér.

Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson / Síldarvinnslan

Deila: