Bakka út úr kvótasetningu á grásleppu

Þingmenn stjórnarflokkanna hafa boðað frumvarp sem miðar að því að afturkalla nýútgefnar veiðiheimildir útgerða í grásleppu. Þess í stað yrði fyrra veiðifyrirkomulag tekið upp. Með öðrum orðum yrði kvótasetning afnumin.
Taka á frumvarp þessa efnis fyrir á fundi atvinnuveganefndar.
Málið er þó ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar.