Síðasti séns að sækja um strandveiðileyfi

Í dag, 22. apríl 2025, er síðasti dagurinn til að sækja um strandveiðileyfi fyrir komandi strandveiðitímabil sem hefst 5. maí. Umsóknarfresturinn rennur út á miðnætti, og eftir það verður ekki hægt að sækja um leyfi.
Umsóknir fara fram í gegnum stafræna umsóknargátt á Ísland.is, þar sem skráðir útgerðaraðilar eða prókúruhafar geta sótt um með rafrænum skilríkjum. Greitt er fyrir leyfið í umsóknarferlinu.
Þrátt fyrir að skip uppfylli ekki öll skilyrði, svo sem haffæri eða eignarhald, er hægt að sækja um leyfi fyrir miðnætti í dag. Leyfið verður veitt þegar öll skilyrði hafa verið uppfyllt.
Fiskistofa bendir á að mikið álag sé á starfsmönnum stofnunarinnar í upphafi strandveiðivertíðar og hvetur því aðila til að senda erindi og fyrirspurnir varðandi strandveiðar á tölvupóstfangið fiskistofa@fiskistofa.is fremur en að hringja.