Misbýður auglýsingar SFS

Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hefur vakið hörð viðbrögð og deilur í samfélaginu. Vísir fjallar um þetta. Elías Pétursson, fyrrverandi bæjarstjóri Fjallabyggðar, gagnrýndi herferðina harðlega í færslu á Facebook og sagði: „Þorpin töpuðu, þorpin urðu undir.“ Hann fordæmir áróður samtakanna og telur að herferðin sýni skort á skilningi á stöðu sjávarbyggða.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, segir hins vegar að viðbrögðin við auglýsingunum hafi verið að mestu leyti jákvæð. „En það má búast við því, þegar fjallað er um sjávarútveg, að það séu skiptar skoðanir á því. Þeir sem hafa verið neikvæðir verða það áfram og þá skipta þessar auglýsingar ekki máli í þeim ranni,“ segir hún.
Auglýsingaherferðin kemur í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að tvöfalda innheimtu veiðigjalds og nýta auknar tekjur til innviðauppbyggingar. Heiðrún Lind hefur lýst yfir áhyggjum af áhrifum þessara breytinga á sjávarútveginn og telur að þær geti haft neikvæð áhrif á atvinnugreinina.
Í færslu Elíasar segir: „Tíminn er breyttur. Þorpin töpuðu. Þorpin urðu undir. Tækifærin hurfu. Verðmæti eigna þorpanna urðu lítil sem engin. Sem betur fer er þetta að breytast. Ferðaþjónusta og tækniframfarir hafa skapað ný tækifæri í þorpunum. Þorpin, sem töpuðu, eru mörg hver að taka við sér eftir hrylling kvótakerfisins.
Það er af þessum ástæðum sem auglýsingar SFS hreinlega misbjóða mér. Auglýsingarnar bera vitni um ævintýralegan hroka þeirra sem tóku lífsbjörgina frá þorpunum en kalla nú eftir ásjá þeirra og aðstoð þegar sanngjörn krafa er gerð um eðlilegt afgjald kvótahafanna til samfélagsins. Sorglegt.“
Meðfylgjandi mynd er frá ársfundi SFS 2022.